Gengi hlutabréfa DeCode Genetics, móðurfélags Íslenskrar erfðagreiningar, hefur hækkað um 8,85% í dag. Félagið er skráð á Nasdaq hlutabréfamarkaðinn í New York.

Á sunnudag tilkynnti félagið frá uppgötvun á erfðabreytileika sem eykur líkur á sykursýki 2.

Gengi félagsins er 10,21 dollar og markaðurinn er enn opinn.