Rekstraruppgjöri ársins 2005 er ekki að fullu lokið en ljóst að afkoma Sláturfélagsins hefur verið góð og betri en ætla mætti af afkomu liðinna ára og 6 mánaða uppgjöri 2005 sem birt hefur verið að því er segir í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar.

Sláturfélag Suðurlands birti ekki rekstraráætlun fyrir árið 2005. Þrátt fyrir að félagið hafi ekki birt rekstraráætlun fyrir árið 2005 vill félagið koma þessum upplýsingum á framfæri.

Þessa góðu afkomu má rekja til umtalsverðs hagnaðar af sölu hlutabréfa. Einnig kemur til hagræðing í rekstri, hagstæðir fjármagnsliðir og bættur rekstur dótturfélaga.