Kaupþing Búnaðarbanki hf. hefur eignast allt hlutafé FI-Holding sem á danska bankann FIH. Kaupverðið, sem nemur 7.292 milljónum danskra króna, hefur verið greitt seljanda FIH, Swedbank. Kaupin voru að mestu fjármögnuð með útgáfu víkjandi skuldabréfa og hlutafjárhækkun til forgangsréttarhafa. Með kaupunum rúmlega tvöfaldast stærð efnahagsreiknings Kaupþings Búnaðarbanka hf.