Rétt fyrir hádegi fóru fram viðskipti í Kauphöllinni með bréf í Kaupþing [ KAUP ] fyrir um 1,3 milljarð. Um er að ræða 1,5 milljón hluti á genginu 868.

Ekki er gefið upp hverjir stóðu að viðskiptunum.

Hlutabréf í Kaupþing hafa hækkað um 0,7% og stendur nú í 870 á hlut.

Velta með bréf í félaginu er nú um 2,5 milljarðar og er meðalgengið 864.