Kvika banki hf. hefur lokið útboði á víxlum til sex mánaða. Í heildina bárust tilboð upp á 3.260 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 2.000 milljónir kr. Þetta kemur fram í tilkynningu sem bankinn sendi til kauphallarinnar.

Víxlarnir bera 6,95 flata vexti og verða teknir til viðskipta á Nasdaq Ísland.