Laun á  almennum vinnumarkaði hækkuðu um 8% að meðaltali á milli áranna 2007 og 2008 samkvæmt vísitölu launa.

Laun verkafólks hækkuðu mest á tímabilinu eða um 9,7% en laun stjórnenda hækkuðu minnst, 6,1%.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands en út er komið hefti Hagtíðinda í efnisflokknum Laun, tekjur og vinnumarkaður þar sem birtar eru niðurstöður vísitölu launa árið 2008.

Laun eftir atvinnugrein hækkuðu mest í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerðum, 9,8%, en minnst hækkuðu laun í iðnaði, 7,5%. Laun opinberra starfsmanna hækkuðu um 9% á sama tímabili.

Sjá nánar á vef Hagstofunnar.