MP Banki mun á mánudag flytja höfuðstöðvar sínar úr Skipholti yfir í Ármúla. Þá mun bankinn jafnframt opna nýtt útibú í nýjum höfuðstöðvum.

Þá mun þjónustuver MP Banka sem staðsett hefur verið í útibúi bankans í Borgartúni einnig flytja í höfuðstöðvarnar í Ármúla.

MP Banki starfrækir nú eitt útibú þannig að útibúin verða tvö eftir opnunina á mánudag.