Níu umsóknir bárust um stöðu framkvæmdastjóra fjármálastöðugleikasviðs Seðlabanka Íslands sem auglýst var til umsóknar í nýliðnum ágúst. Fréttastofa Rúv greinir frá þessu og tilgreinir nöfn umsækjenda. Meðal þeirra eru eru Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs hjá Samtöku matvinnulífsins, Guðrún Ögmundsdóttir, forstöðumaður lausafjáráhættu og fjármálafyrirtækja hjá Seðlabankanum, og Bryndís Ásbjarnardóttir, forstöðumaður þjóðhagsvarúðar hjá Fjármálaeftirlitinu.

Aðrir umsækjendur eru Arnar Ingi Einarsson, Árni Árnason, Eggert Þröstur Þórarinsson, Gunnar Jakobsson, Haukur C. Benediktsson og Þorsteinn Þorgeirsson.

Fjármálastöðugleikasvið Seðlabankans fylgist með þróun fjármálakerfisins hér á landi sem og erlendis. Metur styrk þess og skilvirkni og áhrifum efnahagslegra þátt á kerfið í heild sinni. Meginhlutverk sviðsins er að greina áhættu í fjármálakerfinu og taka þátt í mótun varúðarreglna fyrir fjármálakerfið.