Olíuverð er farið undir 30 dali á tunnuna eftir verðlækkanir dagsins.

Verð á Brent hráolíu hefur lækkað um 3,6% það sem af er degi og selst nú fyrir 29,76 dali á tunnuna. Á sama tíma hefur Texas hráolía lækkað um 5% og selst nú á 29,64 dali á tunnu.

Olíuverð hefur lækkað um 21% þar sem af er ári.