Samherji hefur sent frá sér tilkynningu, þar sem fram kemur að Arnar Þór Stefánsson, lögmaður félagsins, hafi sent Stefáni Eiríksyni útvarpsstjóra fyrirspurn. Óskaði lögmaðurinn eftir því að Ríkisútvarpið afhenti Samherja nú þegar skjal frá Verðlagsstofu skiptaverðs, sem Kastljós byggði umfjöllun sína um Samherja á þann 27. mars árið 2012.

Í tilkynningunni segir að eftirfarandi svar hafi borist frá útvarpsstjóra: „RÚV hefur ekki umrætt skjal í fórum sínum lengur. Það var notað við vinnslu Kastljóssþáttar árið 2012 og afhent Seðlabankanum að hans ósk í febrúar það ár." Ennfremur kemur fram að útvarpsstjóri hafi bent lögmanninum á að beina „beiðni um afhendingu skjalsins til Verðlagsstofu skiptaverðs eða eftir atvikum Seðlabanka Íslands.“

Í tilkynningu Samherja segir:

„Svar útvarpsstjóra er athyglisvert fyrir þær sakir að í yfirlýsinu sem Þóra Arnórsdóttir birti hinn 11. ágúst síðastliðinn segir að um hafi verið að ræða skýrslu „sem var 3 blaðsíður og undirrituð af þáverandi forstjóra Verðlagsstofu skiptaverðs“ og að skýrslan hafi sannarlega verið „borin undir Seðlabankann, sem óskaði eftir og fékk afrit af henni.“

Svar Stefáns Eiríkssonar, útvarpsstjóra, varpar ljósi á þá athugun sem fór fram hjá Ríkisútvarpinu eftir að þáttur Samherja um upphaf Seðlabankamálsins fór í loftið þriðjudaginn 11. ágúst. Í yfirlýsingu útvarpsstjóra og fréttastjóra þann dag var meginfullyrðingu Samherja, um að engin skýrsla hafi verið samin, hafnað. „RÚV hafnar þessu sem röngu,“ sagði þar. Umrædd yfirlýsing var gefin út þremur klukkustundum eftir að þáttur Samherja var sýndur. Svar útvarpsstjóra við erindi lögmanns Samherja bendir til þess að útvarpsstjóri og fréttastjóri hafi í reynd ekki vitað hvort Ríkisútvarpið hefði skýrsluna undir höndum, eða hvers eðlis skýrslan væri, áður en yfirlýsingin var birt. Eru því sterkar vísbendingar um fullyrðingar í yfirlýsingunni hafi verið settar fram án vitneskju um hvort þær væru sannar. Hljóta það að teljast býsna ámælisverð vinnubrögð af hálfu stofnunar sem vinnur í þágu og umboði almennings."