Nýskráningar bíla hjá BL ehf. fyrstu fimm mánuði ársins voru 48 prósentum fleiri en á sama tímabili 2014 og 7% prósentum fleiri en sem nam heildarstækkun bílamarkaðarins á tímabilinu í ár. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Alls voru skráðir 602 bílar hjá BL í maí; 202 til einstaklinga og fyrirtækja og 400 til bílaleiga. Almennt stækkaði markaðurinn um 20% í maí borið saman við maí 2014.

Alls fengu bílaleigur landsins afhentan 3.531 bíl frá bílaumboðunum fyrstu fimm mánuði ársins, þar af 1957 bíla í maí. Miðað við apríl nemur aukningin 1180 bílum. Það sem af er ári hefur floti bílaleiganna ekki haldið í við vöxt bílamarkaðarins í heild sem var 41% fyrstu fimm mánuði ársins, en 39,8% til bílaleiga. Á árinu 2014 keyptu bílaleigurnar alls 4462 bíla.