Síminn hefur gengið frá kaupum á öllum hlutabréfum í þjónustufyrirtækinu Sensa ehf. Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Markmið með kaupunum er að styrkja enn frekar þjónustu og ráðgjöf Símans til fyrirtækja bæði innanlands og erlendis, segir í tilkynningu.  Kaupverðið er ekki uppgefið.

Samningaviðræður milli fyrirtækjanna hafa staðið yfir undanfarnar vikur. Sigríður Olgeirsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Símanum leiddi samningaferlið og segir hún þessa niðurstöðu afar ánægjulega og að hún styrki bæði félögin í vexti sínum á heimamarkaði og erlendis. ?Tækifærin sem skapist með samvinnu þessara tveggja félaga eru fjöldamörg og spennandi verður að fylgja þeim verkefnum eftir,? segir Sigríður.

Stefna Símans hefur verið að auka sérhæfða ráðgjöf og innleiðingu samskiptalausna og eru kaupin á Sensa liður í þeirri stefnu. Fyrri eigendur Sensa og stofnendur fyrirtækisins munu allir starfa áfram hjá fyrirtækinu eftir eigendaskiptin. Ekki verður gerð breyting á rekstrarformi félagsins eftir kaupin.

Sensa ehf. er þjónustufyrirtæki með sérfræðiþekkingu á sviði IP samskiptalausna. Áhersla er lögð á að uppfylla sífellt vaxandi þörf íslenskra fyrirtækja og stofnana fyrir samskiptahætti og leiðir sem uppfylla kröfur um áreiðanleika, öryggi og afköst. Sensa var stofnað árið 2002 og starfa 17 starfsmenn með mikla þekkingu á IP samskiptalausnum hjá fyrirtækinu. Velta Sensa á árinu 2006 var 997 milljónir. Sensa er eina fyrirtækið hér á landi sem hefur hlotið silfurvottun (Silver Certified Partner) frá Cisco Systems Inc. Sensa var jafnframt valið fyrirmyndar fyrirtæki ársins 2006 í hópi minni fyrirtækja af VR.

Valgerður Hrund Skúladóttir framkvæmdastjóri Sensa segir kaup Símans staðfesta að fyrirtækið er leiðandi í þjónustu á sviði netlausna hér á landi. Kaupum Símans á fyrirtækinu fylgja spennandi og krefjandi verkefni sem munu skila sér í auknum ávinningi til viðskiptavina.

Í kjölfar eigendaskiptanna mun Sævar Freyr Þráinsson framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Símans taka við stjórnarformennsku í Sensa. Aðrir í stjórn verða Sigríður Olgeirsdóttir framkvæmdastjóri hjá Símanum og Ólafur Jóhann Ólafsson hjá Sensa.