Ekki verður kosið á milli frambjóðenda í stjórn Samtaka fjárfesta á aðalfundi félagsins á morgun. Kosið verður um fimm aðalmenn og tvo varamenn.

Þar sem framboðsfrestur rennur út þremur sólarhringum fyrir aðalfundinn er ljóst að sjálfkjörið er í stjórn.

Samkvæmt heimasíðu samtakanna liggur fyrir tillaga um að þessir skipti stjórnina: Bolli Héðinsson, Halldór Halldórsson, Ólafur Ísleifsson, Salvör Nordal og sjálfur Vilhjálmur Bjarnason, sem einnig er framkvæmdastjóri.

Til vara eru Soffía Hilmarsdóttir og Rúna Hauksdóttir.