Bæjarstjórn Reykjanesbæjar vill tvöföldun Reykjanesbrautar á samgönguáætlun hið fyrsta. Er farið fram á þetta við ráðherra samgöngumála og Vegamálastjóra í nýrri bókun samþykktri af öllum greiddum atkvæðum, þar sem segir að bregðast þurfi við stóraukinni umferð á Reykjanesbraut.

Segir í fréttatilkynningunni að halda þurfi áfram að útrýma slysagildrum á brautinni, meðal annars með gerð hringtorga. Segir að þau tvö hringtorg sem þegar hafi verið gerð á veginum við Reykjanesbæ, við Stekk og Grænás, hafi skipt sköpum í bættu umferðaröryggi.

Bókunin sjálf:

„Reykjanesbær hefur undanfarin ár í samstarfi við Vegagerðina unnið að því að útrýma slysagildrum á Reykjanesbrautinni sem eftir brotthvarf bandaríkjahers sker bæinn í tvennt með tilheyrandi gatnamótum og tengipunktum. Þessar slysagildrur hafa verið greindar eftir slysatölum frá Umferðarstofu.

Frá 2009 hafa framkvæmdir við hringtorg Grænás ásamt undirgöngum þar og hringtorgi við gatnamótin við Stekk stórbætt öryggi vegfarenda. Þessi umferðarmannvirki hafa sannað gildi sitt og hafa engin slys orði á fólki þar síðan. Þá stendur yfir útboð í gerð undirganga fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur undir Reykjanesbraut við Hafnaveg og skal verkinu lokið 15. nóvember.

Á undanförnum árum hefur umferðin á þessum kafla Reykjanesbrautar stóraukist bæði vegna íbúafjölgunar og stórauknum straumi ferðamanna. Nú er svo komið að ekki er hægt að bíða lengur með  að tvöfalda þennan vegakafla sem telja þrjú svokölluð „T“ gatnamót.

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar  fer fram á það við Ráðherra samgöngumála og Vegamálastjóra að  tvöföldun Reykjanesbrautar verði sett á samgönguáætlun hið fyrsta en þar til henni verði lokið  verði tafarlaust farið í eftirfarandi framkvæmdir.

1. Tengja Hafnaveg við hringtorgið við Stekk.

2. Setja hringtorg við gatnamót Þjóðbrautar og Reykjanesbrautar.

3. Setja hringtorg við gatnamót Aðalgötu og Reykjanesbrautar.

Með því að fara í þessar framkvæmdir verður öllum megin slysagildrum á þessum einum fjölfarnasta vegarkafla útrýmt og öryggi vegfarenda á Reykjanesbraut stóraukið. Þá mun einnig vinnast tími til að vinna að endanlegri lausn sem er tvöföldun Reykjanesbrautarinnar.“