Rétt fyrir klukkan sex í dag voru undirskriftir orðnar yfir 16.000 á Þjóðareign.is, þar sem undirskriftum er safnað til að hvetja forseta Íslands til að samþykkja ekki stjórnarfrumvarpið sem lagt hefur verið fram á Alþingi um úthlutun makrílkvóta, heldur vísa því í þjóðaratkvæðagreiðslu.

VB.is greindi frá að margir væru búnir að skrifa undir fyrr í dag, en síðan klukkan eitt hefur undriskriftum fjölgað um yfir 4 þúsund.

Jón Steinsson hagfræðingur og einn aðstandenda undirskriftasöfnunarinnar hefur sagtum málið að til þess að bæta lífskjör á Íslandi sé lykilatriði að þjóðin njóti arðsins af sameiginlegum auðlindum hennar.