Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 46 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins 2007 samanborið við 40,4 milljarða á sama tímabili 2006. Aukningin nemur 5,6 milljörðum króna eða 14% milli ára að því er kemur fram í frétt Hagstofunnar. Aflaverðmæti júnímánaðar nam 5,7 milljörðum en í júní í fyrra var verðmæti afla 6,4 milljarðar.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok júní orðið 34,1 milljarður miðað við 30,4 milljarða á sama tíma árið 2006 og er um 12,2% aukningu að ræða. Verðmæti þorskafla var 18,3 milljarðar og jókst um 23,7%. Aflaverðmæti ýsu nam 6,6 milljörðum, sem er 15,7% aukning, og ufsaaflinn jókst að verðmæti um 11,7%, var 2,1 milljarðar króna.

Verðmæti flatfiskafla dróst saman um 17,9%, nam 2,6 milljörðum króna. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 42,7% og nam 8,8 milljörðum. Munar þar mestu um verðmæti loðnu sem nam 4,2 milljörðum samanborið við 2,2 milljarða í fyrra og kolmunna að verðmæti 2,8 milljarðar samanborið við 3,1 milljarða 2006.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands var 21,2 milljarðar króna, sem er auking um 5,1 milljarð eða 31,3%. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 23,3%, var 7,9 milljarðar. Aflaverðmæti sjófrystingar var 11,7 milljarðar og dróst saman um 7,4% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 4,3 milljörðum sem er 3,3% aukning.