Árnína Steinunn Kristjánsdóttir lögmaður hefur hafið störf á skrifstofu Samtaka fjármálafyrirtækja. Hún starfaði síðast á lögfræðisviði Actavis Group í Sviss en sneri aftur til Íslands í hausts.

Árnína Steinunn hefur víðtæka lögfræðireynslu á íslenskum fjármálamarkaði og var meðal annars forstöðumaður lögfræðisviðs Kauphallar Íslands á árunum 2004 til 2010. Hún starfaði jafnframt sem regluvörður SpKef árið 2010.