Flugfélagið Delta hóf í gær flug á milli Keflavíkurflugvallar og Minneapolis. Flugfélagið mun bjóða upp á dagleg flug á milli áfangastaðanna fram til 6. september, en þetta er annar áfangastaður Delta frá Keflavíkurflugvelli, en einnig flýgur Delta til New York. Delta hóf flug til Íslands árið 2011 og flaug þá fimm sinnum í viku, en nú eru flugin orðin 15 í hverri viku. Kemur þetta fram í tilkynningu.

Flugfélögum sem fljúga til Keflavíkurflugvallar hefur fjölgað til muna á síðustu árum. Í ár fljúga 11 félög þangað yfir allt árið, þar á meðal Delta, en þau voru aðeins tvö árið 2005, og í sumar verða flugfélögin 25 og hafa aldrei verið fleiri. Til samanburðar má nefna að sumarið 2009 lentu flugvélar frá sjö flugfélögum í reglubundnu flugi á Keflavíkurflugvelli.

Í tilefni dagsins bauð Isavia farþegum upp á léttar veitingar.