Eignarhlutur íslenskra lífeyrissjóða í HS Orku mun aukast um 12,7 prósent og verða 46,1 prósent. Um þetta náðist samkomulag á milli fagfjárfestingasjóðsins ORK, sem er að mestu leyti í eigu íslenskra lífeyrissjóða, og Magma Energy, dótturfélags kanadíska orkufélagsins Alterra. Um málið er fjallað í Fréttablaðinu en samkomulagið tengist uppgjöri á skuldabréfi sem Magma gaf út við kaup á hlut sínum í HS Orku árið 2009.

Felur það í sér að ORK mun taka yfir 12,7 prósenta hlut Magma í HS Orku á genginu 6,97 krónur hlut. Verðmæti eignarhlutarins nemur um 6,9 milljörðum króna. Hlutur Magma mun því minnka úr 66,6 prósentum niður í 53,9 prósent, en fyrir eiga fjórtán lífeyrissjóðir 33,4 prósenta hlut í HS Orku í gegnum félagið Jarðvarma. Samtals munu lífeyrissjóðirnir eignast 46,1 prósent hlut í félaginu að virði 25,2 milljarða króna.

Yfirtaka ORK á hlut Magna er þó háð því að stjórn HS Orku eða aðrir hluthafar nýti sér ekki forkaupsrétt sinn að hlutunum. Nú þegar hefur Magma fallið frá forkaupsrétti sínum. Enn er hins vegar óvíst hvort Jarðvarmi nýti forkaupsrétt sinn.