Afkoma Landsbankans var jákvæð um 7,6 milljarða króna eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi ársins 2017, en hagnaður bankans á sama tímabili í fyrra nam 3,3 milljörðum króna. Hagnaðurinn jókst því um 130% milli ára. Í fyrra hagnaðist Landsbankinn um 16,6 milljarða. Hagnaður fyrsta ársfjórðungs þessa árs er því um 45% af hagnaði alls ársins í fyrra.

Hreinar vaxtatekjur voru 8 milljarðar króna og hækkuðu 7,4% milli tímabila. Hreinar þjónustutekjur námu 2,1 milljarði króna og hækkuðu um 7% frá sama tímabili árið áður. Aðrar rekstrartekjur námu 3,8 milljörðum króna samanborið við 1,8 milljarð króna á sama tímabili 2016. Hækkunin skýrist aðallega af jákvæðum gangvirðisbreytingum á óskráðum hlutabréfum.

Arðsemi eigin fjár á tímabilinu var 12,5% á ársgrundvelli samanborið við 5% á sama tímabili 2016.

Rekstrartekjur Landsbankans á fyrsta ársfjórðungi þessa árs námu 15,7 milljörðum króna samanborið við 11,5 milljarða króna á sama tímabili árið 2016 og er þetta hækkun um 36% milli ára. Hins vegar lækkaði rekstrarkostnaður um 5,4% miðað við sma tímabil árið 2016, en alls nam rekstrarkostnaður bankans 5,9 milljörðum á tímabilinu.

Stóraukin útlán bankans

Útlán Landsbankans jukust um 19 milljarða króna frá áramótum, einkum í formi íbúðalána, þrátt fyrir mikla og vaxandi samkeppni á lánamarkaði. Aukningin endurspeglar bæði aukna markaðshlutdeild Landsbankans og miklar verðhækkanir á fasteignamarkaði.

Eigið fé Landsbankans var 233,9 milljarðar króna í lok tímabilsins og eiginfjárhlutfallið var 27,4%. Landsbankinn greiðir á þessu ári 24,8 milljarða króna í arð. Annars vegar er um að ræða 13 milljarða króna arðgreiðslu vegna rekstrarársins 2016 sem samsvarar um 78% af hagnaði ársins og var hún greidd til hluthafa 29. mars 2017. Hins vegar er um að ræða sérstakan arð til hluthafa, að fjárhæð 11,8 milljarðar króna, sem greiddur verður til hluthafa 20. september 2017.

Góður vöxtur í reglulegri starfsemi bankans

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri, segir: „Uppgjör Landsbankans á fyrsta ársfjórðungi er gott og afkoman er betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Tekjur bankans halda áfram að aukast sem stafar bæði af auknum umsvifum í atvinnulífinu og aukinni markaðshlutdeild. Arðsemi bankans er góð og sýnilegur árangur er af umbótum í rekstri bankans. Óreglulegir liðir setja nokkurn svip á afkomuna á ársfjórðungnum en þó er ljóst að jafn og góður vöxtur er í reglulegri starfsemi bankans.

Við höldum sterkri stöðu okkar á fyrirtækjamarkaði og í markaðsviðskiptum. Á einstaklingsmarkaði er Landsbankinn nú með 39,2% hlutdeild, samkvæmt Gallup-könnunum. Þetta er afar ánægjulegur árangur, enda leggjum við mikla áherslu á að viðskiptavinir finni að við erum traustur samherji þeirra í fjármálum. Það felst mikil viðurkenning í því að viðskiptavinir kjósi í auknum mæli að beina sínum viðskiptum til Landsbankans. Vanskilahlutfallið hefur aldrei verið lægra og fögnum við þessari staðfestingu á bættri stöðu viðskiptavina okkar.“