Landsframleiðslan á 3. ársfjórðungi 2016 jókst að raungildi um 3,1% frá sama ársfjórðungi fyrra árs að því er Hagstofan greinir frá. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, um 10,7%. Einkaneysla jókst um 6,7%, samneysla um 2,9% og fjárfesting um 19,4%.

Útflutningur dróst saman um 0,1% á sama tíma og innflutningur jókst um 11,6%. Helstu drifkraftar hagvaxtar er fjármunamyndun og einkaneysla. Árstíðaleiðrétt landsframleiðsla jókst að raungildi um 2,2% frá 2. ársfjórðungi 2017. Á fyrstu níu mánuðum ársins 2017 jókst landsframleiðslan um 4,3% að raungildi borið saman við fyrstu níu mánuði ársins 2016.

Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, um 7,4%. Einkaneysla jókst um 7,7%, samneysla um 2,7% og fjárfesting um 11,8%. Útflutningur jókst um 3,9% og innflutningur nokkru meira, eða um 10,7%.