Heiða Kristín Helgadóttir, sem hætti sem stjórnarformaður Bjartrar framtíðar í síðasta mánuði, hefur verið ráðin til 365 miðla. Kjarninn greinir frá þessu.

Þar kemur fram að Heiða muni stýra vikulegum þætti um þjóðmál á Stöð 2 og mun þátturinn heyra undir fréttastofu fyrirtækisins.

Heiða Kristín tilkynnti í desember uppsögn sína sem stjórnarformaður Bjartrar framtíðar og jafnframt að hún myndi hætta afskiptum sínum af stjórnmálum að sinni.