Íslandsbanki kærði Höllu Sigrúnu Hjartardóttur, núverandi stjórnarformann FME, til Fjármálaeftirlitsins og sérstaks saksóknara eftir að hún lét af störfum og hóf störf hjá Straumi. Kærurnar voru látnar niður falla hjá báðum embættum, samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins og mun það hafa verið gert áður en Halla hóf störf hjá Straumi. Lauk málunum því fyrir áramót 2011-2012.

Tómas Sigurðsson, yfirlögfræðingur Íslandsbanka, segir í samtali við Viðskiptablaðið að hann vildi ekki tjá sig um efni kærunnar, en samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins var Höllu gefið að sök að hafa tekið með sér upplýsingar úr bankanum þegar hún skipti um vinnu.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast pdf-útgáfu af blaðinu með því að smella á hlekkinn Tölublöð .