Júlía Rós Atladóttir hefur verið ráðin til liðs við Coca-Cola European Partners á Íslandi og mun veita vörustjórnunarsviði forystu. Hjá fyrirtækinu starfa um 160 starfsmenn, þar af um 100 á vörustjórnunarsviði við framleiðslu, í vöruhúsi og dreifingu, bæði í Reykjavík og á Akureyri.

Hún mun jafnframt sitja í framkvæmdastjórn Coca-Cola á Íslandi og þar með eru konur komnar í 46% hlutfall í efstu stjórnendastöðum fyrirtækisins.

Júlía Rós hefur víðtæka stjórnendareynslu af vörustjórnun en hún starfaði sem stjórnandi í lyfjaframleiðslu og verkefnastjóri á þróunarsviði Actavis í 10 ár, stýrði vöruhúsum Distica í 7 ár og undanfarin 2 ár hefur hún unnið í birgðastýringu sem markaðsstjóri hjá Vistor. Hún lauk mastersgráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 2015, B.Ed. gráðu frá Háskóla Íslands árið 2011, diplómanámi í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands 2008 og diplóma í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun frá Háskóla Íslands árið 2006.

Júlía Rós er gift Hermanni Björnssyni og eiga þau fjögur börn á aldrinum 8 til 16 ára.