Leiðandi hagvísir Analytica (e. Composite Leading Indicator) lækkar í október, tíunda mánuðinn í röð. Lækkun hagvísisins frá í janúar er mesta samfellda lækkun frá árinu 2007. Þessi þróun ber vott um óvissu sem ríkir með efnahagshorfur framundan.

Fjórir af sex undirliðum lækka frá í september en mesta framlag til lækkunar hafa debetkortavelta og væntingavísitala Gallup. Komur ferðamanna um Keflavíkurflugvöll og aflamagn hækka á milli mánaða. Langtímauppleitni mikilvægra undirþátta er þó enn sterk. Áfram eru áhættuþættir í ytra umhverfi sem ógnað gætu hagvexti einkum tengdir stöðunni í alþjóðastjórnmálum.

Leiðandi hagvísir Analytica er vísitala sem gefur vísbendingu um efnahagsumsvif að sex mánuðum liðnum. Vísitölur leiðandi hagvísa hafa verið reiknaðar fyrir flest helstu iðnríki um áratugaskeið í þeim tilgangi að veita tímanlega vísbendingu um framleiðsluþróun.

Hugmyndin að baki vísitölunni er sú að framleiðsla hefur aðdraganda. Vísitalan er reiknuð á grundvelli þátta sem mælast í upphafi framleiðsluferilsins og/eða veita vísbendingar um eftirspurn eftir vörum og þjónustu. Til að unnt sé að auka framleiðslu þarf t.d. að afla aðfanga og stofna til fjárfestinga.

Leiðandi hagvísir Analytica er samansettur úr sex undirþáttum af mismunandi toga. Um er að ræða aflamagn, debetkortaveltu, ferðamannafjölda, heimsvísitölu hlutabréfa, innflutning og væntingavísitölu Gallup. Í október lækka fjórir af sex undirþáttum frá fyrra ári. Frá í septembermánuði lækka einnig fjórir af sex undirþáttum.