Skiptum er lokið á einkahlutafélaginu R400 ehf. sem áður hét Rómur ehf. Alls námu lýstar kröfur rúmlega 1,9 milljörð um króna. Félagið sem var stofnað í maí 2007 af Skollaborga ehf., félagi í eigu Hraðfrystihússins Gunnvöru, og Jakobi Valgeiri ehf. hélt utan um eignarhald og leigu aflaheimilda. Stærsti hluti eigna var í afla með þorsk og ýsu. Skiptum lauk með út hlutunargerð úr þrotabúinu en samtals greiddust rúmlega 1,7 milljónir króna upp í kröfur. Því greiddist um 0,091% upp í kröfur eftir því sem fram kom í Lögbirtingablaðinu.
Samkvæmt síðasta birta árs reikningi félagsins fyrir árið 2008 var það rekið með 1,8 milljarða tapi. Eignir félagsins námu þá um 1,5 milljörðum króna en skuldir um 3,5 milljörðum. Framkvæmdastjóri félagsins var á þeim tíma og frá stofnun Jakob Valgeir Flosason, oft tengdur við eignarhalds félagið Stím ehf.
DV bætir því við í umfjöllun um félagið í dag að Landsbankinn hafi verið eini kröfuhafi félagsins Þá segi að sama ár og Rómur var stofnað hafi það keypt hlutabréf í Halla ÍS 197 ehf og Kristjáni ÍS 816 ehf sem höfðu yfir að ráða fiskveiðiheimildum upp á samtals 440 tonn af ýsu, rúmum 400 tonnum af þorski tæpum 100 tonnum af steinbít.