Ólafía B. Rafnsdóttir, fyrrverandi formaður VR, hefur verið ráðin aðstoðarmaður Benedikts Jóhannessonar fjármála- og efnahagsráðherra. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

Ólafía var formaður VR á árunum 2013 til 2017. Ólafía laut lægra haldi í kosningum til formanns VR í mars síðastliðinn fyrir Ragnari Þóri Ingólfssyni. Áður starfaði Ólafía sem varaformaður Landssambands íslenskra verslunarmanna og var hún jafnframt fyrsti varaforseti ASÍ. Ólafía starfaði enn fremur sem framkvæmdastjóri hjá mannauðssviði 365 miðla, deildarstjóri innheimtudeildar Tals, þjónustustjóri Islandia Internet og hjá VR.

Ólafía hefur fjölbreytta reynslu af nefndar- og félagsstörfum. Hún hefur t.a.m. gegnt stjórnarformennsku hjá Rannsóknarsetri verslunarinnar, setið í miðstjórn ASÍ og verið formaður í vinnumarkaðsnefnd og Jafnréttis- og fjölskyldunefnd. Þá hefur Ólafía starfað sem kosningastjóri. m.a. fyrir forsetaframboð Ólafs Ragnars Grímssonar árið 1996 og 2012.

Hún lauk MBA-gráðu frá Háskóla Íslands árið 2012, námi í mannauðsstjórnun við Endurmenntun Háskóla Íslands árið 2005 og verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun við sömu stofnun árið 2004.