Í yfirlýsingu sem samþykkt var einróma á fundi starfsmanna Fréttablaðsins og Vísis 8. ágúst síðastliðinn mótmæla þeir harðlega óverðskuldaðri uppsögn yfirmanns ljósmyndadeildar 365, Pjeturs Sigurðssonar.

Fréttatíminn birti frétt um málið í lok maí en samkvæmt henni sakaði Pjetur aðalritstjóra 365 miðla, Kristínu Þorsteinsdóttur, um einelti í sinn garð.

Hefur þriggja áratuga reynslu sem blaðaljósmyndari

„Pjetur Sigurðsson hefur þriggja áratuga reynslu sem blaðaljósmyndari.
Þar af þrettán ára starfsferil hjá Fréttablaðinu og Vísi. Hann á að baki farsælan feril og hefur reynst góður samstarfsmaður,“ segir í yfirlýsingu starfsmannanna.

Fjármálastjóri og mannauðsstjóri fyrirtækisins fóru í formlega athugun á málinu í kjölfar kvörtunar Pjeturs á meintu langvarandi einelti útgefandans.

Eineltisrannsókn stöðvuð og aðalritstjórinn beðinn afsökunar

Á eineltið að hafa staðið yfir í um eitt ár og lyst sér í sífelldum athugasemdum við störf og vinnuframlag Pjeturs, og stirðum samskiptum á milli þeirra sem hann upplifði sem persónulega aðför að sér sjálfum.

Athuguninni var þó hætt þegar Kristín komst á snoðir um málið, Pjetur var sendur í leyfi og tók forstjóri 365 miðla, Svar Freyr Þráinsson tók málið yfir. Var Kristín beðin sérstaklega afsökunar á athugun mannauðsstjóra og fjármálastjóra. Ekki löngu síðar lét mannauðsstjórinn af störfum í fyrirtækinu.

Í yfirlýsingu starfsmannanna segir jafnframt:

„Við, starfsmenn Fréttablaðsins og Vísis, mótmælum harðlega óverðskuldaðri uppsögn yfirmanns ljósmyndadeildar 365, Pjeturs Sigurðssonar. Jafnframt eru hörmuð óásættanleg vinnubrögð aðalritstjóra og yfirstjórnar fyrirtækisins í aðdraganda uppsagnar Pjeturs og við kynningu á henni til samstarfsmanna hans.

Við beinum því til stjórnar og stjórnenda 365 að tryggja að slík framganga, sem grefur undan faglegum grunni og trúverðugleika fréttastofunnar, geti ekki endurtekið sig.

Við teljum að öll meðferð málsins hafi skaðað alvarlega það traust sem verður að ríkja innan ritstjórnarinnar.“