Gengi hlutabréfa TM hækkaði um 1,15% í Kauphöllinni í dag. Gengi bréfa í Högum hækkaði 1%, Marel um 0,73% og Icelandair um 0,71%. Mest var veltan með bréf í Icelandair í dag, en hún nam 139 milljónum króna.

Á sama tíma lækkaði gengi bréfa í Össuri um 1,10%, í HB Granda um 0,59% og í Regin um 0,55%.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,47% og endaði í 1.310,95 stigum við lokun hlutabréfamarkaðar.