Þýska þingið samþykkti fyrr í dag lög sem mun neyða samfélagsmiðla til að greiða sekt upp á allt að 50 milljónum evra ef þeim tekst ekki að fjarlægja haturorðræðu, falskar fréttir og annað ólöglegt efni af miðlum sínum. BBC greinir frá.

Lögin sem munu taka gildi í október næstkomandi munu skilda samfélagsmiðla sem eru með fleiri en tvær milljónir notenda til að eyða öllu efni sem inniheldur hatursorðræðu eða annað ólöglegt efni innan sólarhrings frá því að efni birtist. Ef viðkomandi samfélagsmiðli tekst ekki að fjarlægja efnið fær það að minnsta kosti 5 milljón evra sekt sem getur hækkað upp í 50 milljónir eftir því hve alvarlegt brotið er.

Forsvarsmenn Facebook hafa gagnrýnt löggjöfina harkalega. Telja þeir að lögin muni ekki þjóna tilgangi sínum um að draga úr hatursorðræðu og fölskum fréttum. Segir Facebook að lögin veiti fyrirtækjum hvata til þess að eyða efni sem minnsti vafi leiki á um hvort uppfylli skilyrði laganna.

Þá segir Facebook að löggjöfin muni hafa þau áhrif að ábyrgðin á flóknum lagalegum ákvörðunum sé færð frá stjórnvöldum til einkaaðila. Auk þess nefna þeir að þónokkrir sérfræðingar í Þýskum lögum telji lögin stangast á við stjórnarskrá landsins auk þess sem þau samræmist ekki lögum Evrópusambandsins.