Alls sóttu 24 um nýtt embætti forstjóra Vegagerðarinnar, en það tekur við af hinu fornfræga embættisheiti Vegamálastjóri sem verið hefur frá stofnun embættisins.

Hreinn Haraldsson sem starfað hefur sem Vegamálastjóri frá árinu 2008 en lætur nú af störfum er því sá síðasti í langri röð stjórnenda Vegagerðarinnar sem hélt gamla embættisheitinu.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra skipar í embættið til fimm ára, frá og með 1. júlí næstkomandi en þriggja manna nefnd hefur verið skipuð til að meta hæfi umsækjenda segir á vef stjórnarráðsins. Í henni eigi sæti Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, Aðalsteinn Ingólfsson, forstjóri Skinneyjar-Þinganess og Guðný Elísabet Ingadóttir, mannauðsstjóri samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins.

Umsækjendur um embætti forstjóra Vegagerðarinnar eru:

  • Ásrún Rudolfsdóttir, forstöðumaður
  • Bergþóra Þorkelsdóttir, fyrrv. forstjóri
  • Bjarki Einarsson, sjómaður
  • Bjarni Óskar Halldórsson, sjálfstætt starfandi ráðgjafi
  • Einar Pálsson, kennari
  • Guðmundur Valur Guðmundsson, forstöðumaður
  • Hannes Alfreð Hannesson, fyrrv. framkvæmdastjóri
  • Ingunn Loftsdóttir, verkefnastjóri
  • Kristín Einarsdóttir, sviðsstjóri
  • Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri
  • Lilja Guðríður Karlsdóttir, framkvæmdastjóri
  • Magnús Rannver Rafnsson, lektor
  • Magnús Valur Jóhannsson, framkvæmdastjóri
  • Ottó Valur Winther, sérfræðingur,
  • Ólafur Kristinn Guðmundsson, tæknistjóri
  • Ólöf Kristjánsdóttir, fagstjóri
  • Óskar Örn Jónsson, forstöðumaður
  • Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, forstöðumaður
  • Róbert Ragnarsson, sjálfstætt starfandi ráðgjafi
  • Runólfur Ágústsson, framkvæmdastjóri
  • Sesselja Traustadóttir, framkvæmdastýra
  • Sigurður Áss Grétarsson, framkvæmdastjóri
  • Steindór Steindórsson, þjónustufulltrúi
  • Þorsteinn Egilsson, svæðisstjóri