Sala á rafknúna pallbílnum Maxus eT90 hefst á þessu ári. Opnað hefur verið fyrir pantanir á bílnum hjá Vatt ehf. dótturfélagi Suzuki bíla.

Fram til þessa hafa pallbílar einungis verið fáanlegir í Evrópu með vélum sem brenna jarðefnaeldsneyti. Og fram að þessu hefur enginn rafknúinn pallbíll verið í boði í Evrópulöndum. Með nýjum Maxus eT90 renna því upp tímamót og hefur framleiðandinn nú tilkynnt hvenær bíllinn verður settur í sölu, á hvaða verði og hvernig hann verður tæknilega útbúinn.

Maxus eT90 er stór, fimm sæta rafknúinn pallbíll. Hann er sterklegur ásýndum og hlaðinn tækni og búnaði. Hann kemur með 88,5 kWst rafhlöðu og akstursdrægið er 330 km (WLTP í blönduðum akstri). Þar sem gerðarviðurkenning fyrir eT90 er miðuð við atvinnutæki er akstursdrægið reiknað út frá fullhlöðnum bíl. Til samanburðar má nefna að akstursdrægi fólksbíla er reiknað út frá óhlöðnum bíl og án farþega. Af þeim sökum má fullvíst telja að uppgefið drægi framleiðanda Maxus sé í takt við raundrægi eins og verið hefur verið með aðrar gerðir Maxus.

Maxus eT90 kemur með rafmótor sem mælist 204 hestöfl og snúningsvægið er 310 Nm. Í staðalgerð kemur hann einnig með hitakerfi fyrir rafhlöðu.

eT90 er með allt að 1.000 kg burðargetu. Hann verður einnig fáanlegur með dráttarbeisli en dráttargeta bílsins hefur ekki verið gefin upp enn sem komið er.

eT90 er 5,37 metrar á lengd, 1,90 á breidd og 1,80 á hæð. Hann er með 3,15 metra löngu hjólhafi. Framsvipur bílsins er kraftalegur með krómuðu grilli og fleiri útlitsatriðum.

Nútímalegt farþegarými og hlaðinn búnaði

eT90 pallbíllinn er líka hlaðinn búnaði. Farþegarýmið er plássmikið og nútímalega hannað. Nefna má að þar er 10,3 tommu snertiskjár, framsæti með sex stillingum, Apple CarPlay tenging, leðurklædd sæti og leðurklætt stýri með aðdrætti og veltu. Öryggisbúnaður er líka vel útilátinn. Bíllinn kemur meðal annars með rafeindastýrðri stöðugleikastýringu, bakkmyndavél, bílastæðaskynjurum og brekkuvara.

Fyrstu bílarnir koma á þessu ári

Vatt ehf. á Íslandi, dótturfyrirtæki Suzuki hf., er í samstarfi við RSA, umboðsaðila Maxus í skandinavíu. Úlfar Hinriksson, framkvæmdastjóri Vatt og Suzuki, segir að fyrstu eT90 pallbílarnir komi til Íslands fyrir áramót.

„Við erum spenntir yfir því að geta markaðssett fyrsta rafknúna pallbílinn í Evrópu. Þessi gerð bíla hefur einungis verið fáanleg með bensín- og dísilvélum. Við höfum orðið varir við mikinn áhuga á eT90.“

Úlfar bendir á að RSA, umboðsaðili Maxus á Norðurlöndum og víðar, hafi notið mikillar velgengni í sölu á pallbílum og muni njóta þeirrar reynslu til þess að hámarka sölu á eT90 á norska markaðnum.

„Við bindum miklar vonir við góðar móttökur á eT90 hér á landi. Hann fellur fullkomlega inn í nýtt hólf á markaðnum því hann hentar jafnvel sem fjölskyldubíll, farartæki fyrir þá með öðruvísi lífstíl og fyrir fyrirtæki af margvíslegu tagi,“ segir Úlfar.