Yfirtaka Philip Green á eigum Baugs mun koma sér mjög vel fyrir hann, segir Freddie George hjá breska fjármálafyrirtækinu Seymour Pierce.

Þetta kemur fram hjá fréttaveitu Dow Jones.

George segir að með yfirtökunni verði Green næst stærsta smásali á Bretlandi og muni hafa veruleg áhrif á smásölumarkað þar í landi.

George segir að með yfirtökunni, ef af verður, muni Green ögra verulega öðrum keðjum og nefnir sem dæmi Marks & Spencer.