Vísitala framleiðsluverðs í febrúar 2008 var 125,7 stig og hækkaði um 3,1% frá janúar 2008. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 139,4 stig, sem er hækkun um 3,1% frá fyrri mánuði, og vísitala fyrir stóriðju var 139,1 stig, hækkaði um 6,0% (1,3%).

Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 0,6% frá janúar (0,1%) en vísitala fyrir annan iðnað um 2,3% (0,6%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 1,4% (0,5%) milli mánaða en fyrir útfluttar afurðir hækkaði hún um 4,1% (2,6%).

Frá febrúar 2007 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 3,1% og verðvísitala sjávarafurða um 10,5%.

Afurðir stóriðju hafa lækkað um 8,4% á sama tíma en matvælaverð hefur hækkað um 4,1%.