Nokkrar sveiflur hafa verið á álverði á heimsmarkaði undanfarna daga. Þannig hefur verið fallið úr rúmlega 2.290 dollurum tonnið þann 19. janúar niður fyrir 2.230 dollara nú fyrir helgina. Er verðið nú svipað og í lok september 2008 og fór það hæst á því tímabili í um 2.307 krónur 8-10 janúar sl. samkvæmt vefsíðu infomine.com.