Ungverska flugfélagið Wizz Air hefur hafið flug á milli Keflavíkurflugvallar og Budapest í Ungverjalandi. Flogið verður tvisvar í viku til Budapest, á miðvikudögum og sunnudögum, allt árið um kring.

Þetta er annar áfangastaður Wizz air frá Íslandi en félagið flýgur einnig til Gdansk í Póllandi. Félagi mun einnig bæta við þriðja áfangastaðnum í maí á þessu ári, en þá bætast flug frá Varsjá í Póllandi við áfangastaðina.