Stefán H. Stefánsson, framkvæmdastjóri Eignastýringarsviðs og stjórnarformaður Landsvaka og Sigurður Óli Hákonarson, framkvæmdastjóri Landsvaka, hafa látið af störfum hjá Landsbankanum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. Þar segir að starfslokin séu samkvæmt þeirra eigin ósk.

„Með þessu vonast þeir til að nauðsynlegur friður skapist um starfsemi Eignarsviðs Landsbanki," segir í tilkynningunni.

Landsvaki er rekstrarfélag verðbréfa- og fjárfestingarsjóða Landsbankans.

Þeir Stefán og Sigurður Óli munu láta af störfum hjá bankanum á næstu dögum.