Á stjórnarfundi Nýherja hf. í dag var Guðrún Ragnarsdóttir skipuð í aðalstjórn félagsins. Guðrún var kjörin í varastjórn á síðasta aðalfundi. Guðrún er Framkvæmdastjóri Lánasjóðs íslenskra námsmanna og stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins.

Þá var Hildur Dungal kjörin varaformaður í stjórn félagsins í stað Árna Vilhjálmssonar sem lést fyrir skömmu.