37,3% eru hlynnt því að Ísland gangi í Evrópusambandið en 49,5% eru andvíg því, samkvæmt niðurstöðum könnunar MMR. Þegar spurt var í apríl sögðust 33,5% vera hlynnt og 49% vera andvíg því að Íslandi gangi í Evrópusambandið.

Spurt var: Ert þú hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að Ísland gangi í Evrópusambandið (ESB)?
Svarmöguleikar voru: Mjög andvíg(ur), frekar andvíg(ur), hvorki andvíg(ur) né hlynnt(ur), frekar hlynnt(ur), mjög hlynnt(ur), veit ekki og vil ekki svara.
Samtals tóku 87,9% afstöðu til spurningarinnar.

Í úrtakinu voru einstaklingar 18 ára  og eldri sem voru valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR . Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Svarfjöldi var 963 einstaklingar en könnunin var framkvæmd 6. til 11. maí 2014