Vextir af þeim skuldabréfum sem Íbúðalánasjóður hefur á undanförnum mánuðum keypt eða yfirtekið af nokkrum bönkum og sparisjóðum verða óbreyttir a.m.k. næstu fimm árin.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íbúðalánasjóð en fram kemur að hefðbundin lán Íbúðalánasjóðs eru hinsvegar með föstum vöxtum.

Fram kemur að hluti umræddra lána ber breytilega vexti sem að jafnaði er heimilt að endurskoða á 5 ára fresti. Stjórn Íbúðalánasjóðs hefur þó samþykkt að réttur til að breyta vöxtum skuldabréfa sem sjóðurinn hefur keypt eða yfirtekið af öðrum fjármálastofnunum skuli ekki nýttur í fyrsta sinn sem slíkur réttur myndast.