Samþykkt var á hluthafafundi í morgun að skipta Dagsbrún upp í tvö rekstrarfélög sem bæði verði skráð í Kauphöll Íslands, að því er fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Félögin verði annars vegar fjölmiðlafélag, 365 hf., og hins vegar fjarskipta- og upplýsingatæknifélag, Teymi hf.

Nýr stjórn hefur verið kjörin fyrir 365 hf. Hana skipa: Jón Ásgeir Jóhannesson formaður, Magnús Ármann, Pálmi Haraldsson, Árni Hauksson og Þorsteinn M. Jónsson. Varamenn eru Matthías Imsland og Soffía Lárusdóttir.

Stjórn 365 ákvað að ráða Ara Edwald sem forstjóra félagsins.