Kaupþing hefur ákveðið að bjóða út sérvarin skuldabréf til fagfjárfesta vegna fjármögnunar á nýjum íbúðalánum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kaupþing.

Bréfin eru til 25 og 40 ára, verðtryggð með föstum vöxtum út lánstímann og skráð á OMX Nordic Exchange, segir í tilkynningunni.

„Útboð á þessum bréfum verður að lágmarki einu sinni á hverjum ársfjórðungi. Kjör á nýjum íbúðalánum ráðast af niðurstöðu útboðsins, en íbúðalán bankans verða með 0,9% álagi. Markmið bankans með þessu fyrirkomulagi er að auka gegnsæi í vaxtamyndun á íbúðalánamarkaði,“ segir í tilkynningu Kaupþings.

Þá kemur fram að komi til breytingar á vöxtum íbúðalána vegna þessa fyrsta útboðs, verður hún tilkynnt að morgni dags 30. júní og tekur gildi þegar í stað.

Útboðið verður með áskriftarfyrirkomulagi (e.book-building) og stendur til klukkan 16:00 föstudaginn 27. júní.