Stjórn Icelandair Group hf. hefur ákveðið að skoða möguleika á skuldabréfaútgáfu félagsins á Íslandi.

Í tilkynningu kemur fram að með skuldabréfaútgáfunni er stefnt að því að auka fjölbreytni í fjármögnun félagsins og búa félagið undir fyrirhugaða fjárfestingu í nýjum flugvélum. Seðlabanki Íslands hefur veitt félaginu heimild til þess að gefa út skuldabréf fyrir allt að 60.000.000 evra og selja til innlendra fjárfesta fyrir íslenskar krónur.

Eftir er að útfæra nákvæmlega skilmála skuldabréfanna. Icelandair Group hefur náð samkomulagi við Íslandsbanka um að annast mögulega útgáfu og sölu skuldabréfanna.