Ný auglýsing frá Símanum sem sýna átti í kvöld er þegar komin inn á YouTube.

Í auglýsingunni leikur Jón Gnarr frumkvöðulinn Galíleo Galíleí sem leiddur fyrir Rannsóknarréttinn í Róm. Þá leikur Hilmir Snær Guðnason dómara sem dæmir Galíleó.

Jón Gnarr er höfundur auglýsingarinnar en hann var einnig höfundur umdeildrar auglýsingar frá Símanum sem vakti athygli á síðasta ári. Þá lék Jón Gnarr Júdas í atriði þar sem Jesú og lærisveinar hans biðu eftir Júdasi og tala saman í gegnum 3G síma. Báðar auglýsingarnar eru teknar upp í Portúgal.

Hér má sjá auglýsinguna á YouTube.