Stjórn stoðtækjafyrirtækisins Össurar leggur til fyrir aðalfund að hluthöfum verði greiddur út arður vegna afkomu síðasta árs eða sem nemur 22% af hagnaði. Össur hagnaðist um rúmlega 37,7 milljónir dala á síðasta ári, jafnvirði rúmra 4,8 milljarða íslenskra króna. Arðgreiðslan myndi þessu samkvæmt nema rétt rúmum einum milljarði króna.

Ef af verður er um talsverð tímamót í sögu stoðtækjafyrirtækisins því það hefur aldrei áður greitt hluthöfum arð í þau fjórtán ár síðan hlutabréf fyrirtækisins voru skráð á markað.

Arðurinn verður greiddur út í dönskum krónum nema óskað verði eftir öðru.

Helstu hluthafar Össurar eru danski sjóðurinn William Demant Invest með 41,2% hlut og danski lífeyrissjóðurinn ATP með 6,2% eignarhlut. Þá á Lífeyrissjóður verzlunarmanna 6,01% hlut í Össuri og Gildi lífeyrissjóður 5,47% hlut. Hlutabréf Össurar eru skráð á markað í Kaupmannahöfn og í Kauphöllina hér. Danir eiga 57% hlut í félaginu en íslenskir fjárfestar 35%. Miðað við þennan eignarhlut fengi William Demant Invest 436,7 milljónir króna af hagnaði Össurar, ATP 65,7 milljónir, Lífeyrissjóður verzlunarmanna 64,7 milljónir og Gildi tæpar 58 milljónir.

Vildu kaupa fyrirtæki eða greiða arð

Tillagan er í samræmi við það sem Niels Jacobsen, stjórnarformaður Össurar, sagði á aðalfundi félagsins í fyrra. Þar sagði hann m.a. fyrirtækið hafa nýtt handbært lausafé til að styrkja reksturinn, s.s. með kaupum á öðrum fyrirtækjum. Stjórnendur hafi leitað að álitlegum fyrirtækjum til yfirtöku áfram. Engir kostir hafi verið í boði og árið nýtt til að koma fjármagni til hluthafa, annað hvort í formi arðgreiðslna, með endurkaupum á hlutabréfum eða með blöndu af báðum leiðum.

Tillaga stjórnar Össurar