Danska fasteignafjárfestingarfélagið, Property Group A/S, hefur fest kaup á 39 fasteignum í Danmörku að því er segir í tilkynningu. Seljandi er SAMPENSION fyrir hönd lífeyrissjóða dönsku sveitarfélaganna (Kommunerner Pension Forsikring (KP). Heildarstærð eignanna er um 106,959 fermetrar. Straumur var ráðgjafi kaupanda.

Property Group A/S er öflugt fasteignafjárfestingarfélag sem leggur áherslu á fasteignakaup í Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Finnlandi, Þýskalandi og Austur Evrópu. Áhersla félagsins er á þróun aðlaðandi fasteignaverkefna fyrir einka- og fyrirtækjafjárfesta. Markmið Property Group A/S er að verða eitt af öflugustu fasteignafjárfestingarfyrirtækjum á Norðurlöndum innan fimm ára segir í tilkynningu.

Straumur er stærsti fjárfestingarbankinn á Íslandi. Bankinn býður heildstæða, samþætta fjárfestingarbankaþjónustu, þ.m.t. markaðsviðskipti, fyrirtækjaráðgjöf, fjármögnun og eignastýringu og eru starfsmenn bankans 406 talsins. Bankinn er með starfsemi í Reykjavík, Lundúnum, Kaupmannahöfn, Helsinki, Prag og Amsterdam.