Stofnfundur Samtaka heilbrigðisiðnaðarins fór fram í gær, 19. janúar. Þau munu starfa sem starfsgreinahópur innan Samtaka iðnaðarins.

Segir í tilkynningu um stofnfundinn að miðað sé við að innan sambandsins séu fyrurtæki sem tengist nýsköpun og þróun á heilbrigðissviði. Fyrirtæki í greininni hafi eflst á undanförnum árum. Meðal stofnfélaga eru vel á annan tug fyrirtækja á borð við Össur og Actavis. Auk þessu eru til dæmis EMR, Nox Medical, Oxymap, Medical Algoriths, MentisCura, ValaMed, ARCTIC Sequentia, Kine, Stiki og SagaMedica.

„Eitt af þeim verkefnum sem þessi nýju samtök standa frammi fyrir er að efla samstarfið innan heilbrigðisklasans með auknum tengslum við stjórnvöld, heilbrigðisstofnanir og önnur fyrirtæki á heilbrigðissviði með bætta þjónustu, hagræðingu, verðmætasköpun og útflutning að leiðarljósi,“ segir í tilkynningu.

Perla Björk formaður

„Á stofnfundinum var kosin 5 manna stjórn og 2 tveir til vara. Formaður var kosinn Perla Björk Egilsdóttir, frá SagaMedica. Meðstjórnendur voru kosnir, Sveinbjörn Höskuldsson, Nox Medical og Jón Valgeirsson, Actavis til tveggja ára og Árni Þór Árnason, Oxymap og Garðar Þorvarðsson, Medical Algorithms til eins árs. Varamenn í stjórn voru kosnir Börkur Arnviðarson, ARCTIC Sequentia og Þorvaldur Ingvarsson, Össuri.“