Þann 27. janúar sl. undirritaði Sparisjóður Mýrasýslu (SPM) samkomulag við alla helstu lánardrottna sína, innlenda sem erlenda, þess efnis að lánadrottnar skuldbinda sig til að gjaldfella ekki lán sparisjóðsins innan tilskilins frests sem þá var ákveðinn 2. mars.

Samkomulaginu hefur nú verið framlengt til 1. apríl næstkomandi við alla lánadrottna utan einn en gert er ráð fyrir að ljúka samningum við hann á næstu dögum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá SPM til Kauphallarinnar í dag en Sparisjóður Mýrasýslu hefur um nokkurn tíma unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu sjóðsins eftir að ljóst varð að ekki yrði af samningi við Kaupþing í kjölfar hruns íslensku viðskiptabankanna.

Í nóvember s.l. undirrituðu Nýi Kaupþing og Borgarbyggð samkomulag um kaup bankans á öllu stofnfé Sparisjóðs Mýrasýslu. Kaupin eru háð því að samningar náist við lánardrottna um fjárhagslega endurskipulagningu sjóðsins auk þess sem fyrirvari er gerður um samþykki Fjármálaeftirlits og Samkeppniseftirlits.

Líkt og fram kom í tilkynningu sjóðsins í janúar verður höfuðstóll lána ekki greiddur á tímabilinu og heldur ekki vextir af víkjandi lánum. Það mun nú gilda áfram.

Sparisjóðurinn mun hins vegar greiða vexti af öðrum lánum, eftir því sem við á, á kyrrstöðutímabilinu og samkomulagið hefur ekki áhrif á stöðu sparifjáreigenda eða þeirra sem eiga almennar viðskiptakröfur á sparisjóðinn.

Þá kemur fram að eigendur skuldabréfa sem tekin hafa verið til viðskipta í kauphöll eru ekki aðilar að þessu samkomulaginu en stefnt er að þátttöku þeirra í fjárhagslegri endurskipulagningu.

Í tilkynningunni kemur fram að þegar hefur verið samið við einn eiganda útgefinna bréfa að fresta gjalddaga bréfanna og vonast er til að fleiri komi að málinu á síðari stigum þess.