Alþjóðlega veitingastaða- og afþreyingakeðjan Oche tekur yfir pláss hins sáluga Stjörnutorgs Kringlunnar frá og með sumarbyrjun. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Þar segir að Ísland verði þar með níunda landið sem geti státað sig af því að bjóða landsmönnum sínum upp á stað þar sem gestir geti notið ljúffengra veitinga, ásamt því að skemmta sér í hátækni pílu, keppa á þar til gerðum shuffleborðum, eða tekið lagið í tveimur af karaoche herbergjum staðarins. Mikið verði lagt upp úr því að gera upplifun gesta sem jákvæðasta og engu til sparað þegar komi að útliti og þægindum, tækni, mat og drykk.

Framkvæmdastjóri og einn eigenda Oche Reykjavík, Mikael Harðarson, segist spenntur fyrir því að sjá verkefnið loks verða að veruleika.

„Við vinnum nú hörðum höndum að undirbúningi opnunar. Framkvæmdir ganga vel en það er í mörg horn að líta og til þess að setja hluti í samhengi þá verða yfir 100 myndavélar inni á staðnum til þess að festa á filmu og skilja betur hvert verið er að kasta pílunum og eins til að fylgjast með því sem er að gerast á shuffleborðunum. Þetta verður háþróaðasti pílustaður landsins og ýmsar nýjungar í boði sem við höfum ekki séð hér á landi áður.“

Tölvugerð mynd sem sýnir hvernig staðurinn mun koma til með að líta út.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

15 pílubásar, 1 VIP herbergi, 5 shuffleborð, 2 karaoche herbergi og sæti fyrir 230 – 300 gesti í mat og drykk, verða á staðnum og segir Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, mikla eftirvæntingu ríkja innan félagsins og Kringlunnar fyrir því að fá Oche í húsið.

„Opnun staðarins er stórt og mikilvægt skref í gagngerri endurnýjun á 3. hæð verslunarmiðstöðvarinnar og við fögnum því að taka þátt í verkefninu og hlökkum til samstarfsins við öfluga rekstraraðila Oche Reykjavík. Að okkar mati færir staðurinn þjónustu- og skemmtiframboð Kringlunnar á áður óþekktan og spennandi stað og það er að sjálfsögðu ekkert annað en jákvætt.“

Matseðillinn á Oche verði þróaður af einum af eigendum staðarins, Ágústi Reynissyni, en hann er landsmönnum kunnur sem einn eigenda veitingastaðanna Fiskmarkaðsins og Grillmarkaðsins.

Rík áhersla verði lögð á rétti sem hægt sé að deila og tapasréttir og pizzur sé meðal þess sem gestir geti gætt sér á. Ásamt þeim Ágústi og Mikael eru aðrir eigendur staðarins Davíð Lúther Sigurðarson og Kristján Sveinlaugsson.

Oche í Kringlunni er tíundi Oche staðurinn sem opnar á heimsvísu og eru staðir keðjunnar til að mynda í Ástralíu, Dubai, Bretlandi, Svíþjóð og Noregi. Troy Warfield, forstjóri The Social Gaming Group, félagsins sem á einkaleyfið fyrir Oche vörumerkinu, er ánægður með áformin.

„Það er okkur ánægjuefni að koma inn á íslenskan markað og ég á ekki von á öðru en að Oche eigi eftir að gleðja Íslendinga og þá gesti sem landið sækja. Það verður spennandi að sjá staðinn rísa í Kringlunni enda staðsetningin frábær og öll plön íslensku samstarfsaðilanna um útlit og starfsemina einnig. Við bjóðum íslensku sérleyfishafana velkomna í alþjóðlega Oche teymið og alla hjá Oche Reykjavík, Reitum og Kringlunni einnig.“