Í maímánuði voru fluttar út vörur fyrir 54,3 milljarða króna og inn fyrir 57,2 milljarða króna. Vöruskiptin í maí, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 2,9 milljarða króna. Þetta kemur fram í nýrri frétt Hagstofu Íslands . Í maí 2014 voru vöruskiptin hins vegar hagstæð um 5,0 milljarða króna á gengi hvors árs.

Fyrstu fimm mánuði ársins 2015 voru fluttar út vörur fyrir rúma 276,2 milljarða króna en inn fyrir tæpa 274,0 milljarða króna. Afgangur var því af vöruskiptum við útlönd sem nam 2,3 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti, en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 2,2 milljarða á gengi hvors árs.

Fyrstu fimm mánuði ársins 2015 var verðmæti vöruútflutnings 48,7 milljörðum eða 21,4% hærra á gengi hvors árs en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 55,2% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 31,0% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á áli. Sjávarafurðir voru 40,7% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 17,4% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á fiskimjöli.

Fyrstu fimm mánuði ársins 2015 var verðmæti vöruinnflutnings 48,7 milljörðum eða 21,6% hærra á gengi hvors árs¹ en á sama tíma árið áður, aðallega vegna hrá- og rekstrarvöru og flugvéla.